Færsluflokkur: Löggæsla

Harðari heimur - þarf að byggja nýtt fangelsi?

prison Púkinn vill fá nýtt fangelsi, enda búinn að fá nóg af því að glæpamenn af öllum stærðum og gerðum gangi um lausir vegna þess að ekki er hagt að loka þá inni vegna plássleysis.

Hér er ekki verið að vísa til hvítflibbaglæpamanna í bankakerfinu - þeir eru kapítuli útaf fyrir sig og efni í sérstaka bloggfærslu - nei, Púkinn er nú bara að ræða um ofbeldismenn, innbrotsþjófa, dópsmyglara og annan gamaldags ruslaralýð.

Sumt af þessu liði er útlendingar, sem koma hingað gagngert til að stunda afbrot.   Hagkvæmast væri að koma þeim úr landi og láta þá sitja af sér dóminn í sínu heimalandi - en sé það ekki hægt, ætti að loka þá inni hér, án möguleika á að mynda nokkur viðskiptatengsl við íslenska aðila í fangelsinu. 

Íslenskir smákrimmar eru sumir hverjir að eltast við pening til að fjármagna sína dópneyslu.   Púkinn myndi vilja sjá betri meðferðarúrræði standa þeim til boða - en ef þau bregðast, þá er fátt annað að gera en að loka viðkomandi inni - ekki í refsingarskyni, eða vegna fælimáttar sem fangelsisvist ætti að hafa, heldur til þess eins að vernda þjóðfélagið gegn viðkomandi.

Fangelsispláss eru bara fullnýtt á Íslandi - það þarf nýtt fangelsi - sem að auki myndi skapa fjölda starfa í byggingariðnaðinum.  Nei, þetta er ekki ókeypis - en er jafnvel ekki dýrara fyrir þjóðfélagið að gera ekkert?

Var ekki verið að segja að það þyrfti að skapa vinnu fyrir fólk í byggingariðnaði?


mbl.is Tíu ára fangelsi í Papeyjarmálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vítisenglar og útrásarvíkingar

prison Nú nýlega var landamæraeftirlit hert til að koma í veg fyrir komu meðlima Hells Angels til landsins. 

Púkinn velti hins vegar fyrir sér hvaða skaða þessir menn gætu unnið íslensku þjóðfélag, samanborið við þann skaða sem aðrir bera ábyrgð á.

"Útrásarvíkingarnir" eru ofarlega á listanum, enda táknmyndir þeirrar græðgivæðingar sem hefur nú lagt þjóðfélagið á hliðina, en sökudólgarnir eru víðar, til dæmis þeir stjórnmálamenn sem bera ábyrgð á einkavæðingu bankann, gölluðum lögum um hlutverk Seðlabankann og sprungnu húsnæðisbólunni.

Sumir af fyrri stórum eigendum bankanna reyna nú að hvítþvo sig, þótt þjóðina gruni að þeir séu önnum kafnir við að flytja fé sitt úr einu skattaskjónu í annað.

Það liggur við að Púkanum finnist að landamæraeftirlitið  hafi ekki beinst í vitlausa átt - í stað þess að hindra Hells Angels í að komast til landsins hefði átt að hindra þá sem bera ábygð á hruninu í að komast úr landi.  Vélhjólaglæpagengin eru hrein englabörn í samanburði.

 


mbl.is „Auknar líkur á þjóðargjaldþroti"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband