Lestölvan mín....

sony-reader-prs-350-pocket-edition-silver-pink-colour.jpgEftir allmikla umhugsun fékk Púkinn sér lestölvu nýlega.

Sú sem varð fyrir valinu var frá Sony og nefnist PRS-350.

Þetta er virkilega þægilegur lítill gripur - passar i venjulegan skyrtuvasa og vegur aðeins 155 grömm.

Hún notar svokallaða e-ink tækni, sem þýðir að hún eyðir nánast engu rafmagni við að sýna mynd (heldur bara þegar flett er), og því þarf bara að stinga henni í samband við tölvu á 10 daga fresti eða svo, miðað við eðlilega notkun.

 Þetta er ódýr gripur, kostar um $180, en hefur ekki alla þá "fídusa" sem sumar stærri lestölvur hafa - er ekki með þráðlausa tengingu, heldur verður að hlaða rafbókunum niður á tölvu og setja þær inn þaðan.  Já, og skjárinn er bara svarthvítur og það er ekki hægt að bæta neinum forritum inn á hana - hún keppir ekki við iPad frá Apple.

Þetta er einfalt tæki fyrir þá sem vilja labba um með bókasafn í vasanum - þetta litla tæki geymir vandræðalaust yfir 1000 bækur.

Bókaúrvalið er að vísu svolítið takmarkað ennþá og sumir útgefendur og seljendur vilja ekki selja til Íslands - en það má t.d. byrja á að fara á  http://www.feedbooks.com/ og sækja án endurgjalds bækur sem njóta ekki lengur höfundarréttarverndar sökum aldurs - allar bækurnar um Sherlock Holmes, svo eitt dæmi sé tekið.  Nú, síðan bjóða margir útgefendur og höfundar upp á rafbækur á vefsíðum sínum - aðdáendur vísindaskáldsagna geta t.d. fengið yfir 100 ókeypis bækur á http://www.webscription.net/ auk þess sem aðrar bækur má kaupa þar á $3-$6 stykkið.

 


mbl.is Áfram 7,5% tollur á Kindle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

  1. Hvaða forsnið/format notar lestölvan?
  2. Er hægt að breyta öðrum skjölum, t.d. PDF- eða Word-skjölum í forsnið sem lestölvan skilur?
  3. Er hægt að stilla hana þannig að hún fletti eftir ákveðinn tíma?
  4. Er hægt að láta blaðsíður fljóta áfram, eða niður?

Theódór Norðkvist, 22.10.2010 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband