Miðvikudagur, 13. júní 2007
"Grænar" tölvur
Þetta hljómar eins og ódýr auglýsingabrella að vilja framleiða "grænar" tölvur, þar sem minni útblástur á gróðurhúsalofttegundum verður til við framleiðsluna.
Það er nefnilega ekki þar sem vandamálið við mengunina frá tölvuiðnaðinum liggur. Mengunin sem stafar af notkun þungmálma við framleiðsluna er sennilega mun hættulegra vandamál.
Tölvuframleiðsla er nefnilega langt frá því að vera umhverfisvæn starfsgrein, sé allt ferlið skoðað.
Fyrirtæki standa sig reyndar misilla, en hér má sjá kort frá Greenpeace, sem sýnir hversu "græn" helstu tölvu- og farsímafyrirtækin eru.
|
Tölvuiðnaðurinn sameinast um grænar tölvur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Tölvur og tækni | Facebook


Athugasemdir
Já, þetta svolítið fyndið. Nú vilja allir slá sig til riddara með grænkunni. En er það ekki annars hið ágætasta mál ef fólk telur sig geta grætt á því að vera grænt? Grænn kapitalismi....
Bryndís Helgadóttir, 13.6.2007 kl. 15:59
Funky afhverju apple ermeð svo skítt score ;P þeir afsökuðu sig massíft með apple.com/hotnews/agreenerapple/ þessari fréttatilkynningu. En mjá... finnst ekkert nema gott mál að eitthvað sé gert. :)
Gunnsteinn Þórisson, 13.6.2007 kl. 16:55
Gott að vera grænn og enginn hefur einkarétt á því.
Eru ekki allir hættir að taka mark á Greenpeace?
Jón Árni Bragason, 14.6.2007 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.