Billjarður, ekki billjón

roadrunner_48Í frétt mbl.is af nýjustu ofurtölvunni er sagt að hún ráði við eina billjón skipana á sekúndu.  Þetta er rangt - hún ræður við einn billjarð reikniaðgerða á sekúndu - þúsundfalt meira en fréttin segir.

Þessi tölva, sem gengur undir nafninu Roadrunner hefur afkastagetu upp á 1 PetaFLOP, eða 1.000.000.000.000.000 skipanir á sekúndu (10E15)

Röðin er svona:

  • MegaFLOP - milljón aðgerðir á sekúndu)
  • GigaFLOP - milljarður aðgerða (amerísk billjón)
  • TeraFLOP - billjón aðgerðir (amerísk trilljón)
  • PetaFLOP -  billjarður aðgerða (amerísk quadrilljón)
  • ExaFLOP - trilljón aðgerða (amerísk quintilljón)
  • ZettaFLOP trilljarður aðgerða (amerísk setilljón)
  • YottaFLOP quintilljón aðgerða (amerísk septilljón)
Nánar má lesa um Roadrunner hér eða hér, en það vekur athygli að örgjörvinn í vélinni var upphaflega hannaður til nota í leikjatölvum.
mbl.is Heimsins hraðasta tölva kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli þetta verði ekki lágmarkskröfurnar fyrir næstu endurholdun windows...?

Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 16:56

2 Smámynd: Maelstrom

Það eru greinilega skiptar skoðanir á því hvernig á að telja þarna uppi.  Quadrillion þarna á milli?

http://is.wikipedia.org/wiki/St%C3%B3rar_t%C3%B6lur

Maelstrom, 18.6.2008 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband