Sumir viðast þeirrar skoðunar að allur jöfnuður sé af hinu góða - því meiri jöfnuður, því betra og helst eigi allir að hafa það nákvæmlega jafn gott (eða skítt).
Púkinn telur þetta hættulegar öfgaskoðanir.
Það er að vísu sanngjarnt að fólk fái sömu laun fyrir sömu vinnu - tveir einstaklingar sem skila sambærilegum verkum jafn vel eiga skilið að fá sömu laun fyrir sína vinnu.
Vandamálið er hins vegar þegar fólk vill hirða meira af þeim sem hafa hærri laun - helst þannig að allir fái í raun sömu upphæð í vasann þegar upp er staðið.  Púkinn hefur jafnvel rekist á fólk sem teygir þessar skoðainr út í þær öfgar að það vill setja í stjórnarskrána ákvæði um jöfn kjör allra.
Púkinn skilur ekki svona einfeldningshugsanahátt.  Hér á Íslandi er fólki í dag refsað fyrir sparnað og að sýna ráðdeild.  Refsað fyrir að sýna varkárni í fjármálum, refsað fyrir að leggja hart að sér til að byggja upp skuldlausar eignir og fyrirtæki - og fólk lendir jafnvel í því að á það er lagður skattur sem nemur 80-100% af þeirra tekjum - og nei, þetta eru ekki ýkjur - Púkinn þekkir svona dæmi.
Ef fólki er refsað fyrir að leggja meira á sig með því að hirða af því allt sem það ber úr býtum fyrir framtakið, til hvers ætti fólk að leggja eitthvað á sig?  Hvers vegna ætti nokkur að leggja út í þá áhættu sem fylgir því að stofna og reka fyrirtæki, ef hið opinbera mun hirða allan ávinninginn, ef einhver verður?
Nei, það verður að vera hvati til að leggja eitthvað á sig - það verður að vera innbyggður hvati til að vinna og skapa vinnu fyrir aðra - a.m.k. ef hér á landi eiga að vera almennt sæmileg lífskjör til frambúðar.
Annað dæmi varðar atvinnuleysisbætur og lágmarkslaun.  Það eru
atvinnulausir einstaklingar (t.d. einstæðir foreldrar með litla menntun)
sem myndu hreinlega tapa á því að fara út á vinnumarkaðinn, þar sem þau
laun sem þeim standa til boða myndu ekki bæta upp kostnaðinn við að
þurfa t.d. að greiða fyrir dagvistun eða leikskóla í stað þess að vera
heima á atvinnuleysisbótum.
Svona vinnuletjandi kerfi er hreinlega mannskemmandi og skaðlegt
þjóðfélaginu í heild.
Púkanum finnst myndavalið hjá mbl.is stundum svolítið undarlegt.
Í frétt sem fjallar um lagningu sæstrengs til að flytja raforku, er mynd sem sýnir sæstrengi sem þegar tengjast Íslandi.
Jú, vissulega eru það sæstrengir líka, en þeir eru bara allt annars eðlis - ljósleiðarar sem flytja gögn og koma raforkusæstrengjum ekkert við.
Það er síðan allt annar handleggur hvar rísstjórnin ætlar að fá raforku til útflutnings - og hvers vegna hún telur heppilegra að flytja raforkuna úr landi en að nota hana til að byggja upp atvinnu innanlands.
Eins og allir vita, þá eiga Íslendingar gjarnan heimsmet í hinu og þessu, miðað við höfðatölu.
Eitt þeirra heimsmeta varðar Íslendingabók, sem sennilega er vinsælasti gagnagrunnur heims miðað við höfðatölu, því meira en helmingur Íslendinga hefur skráð sig sem notendur.
Það er líka til önnur leið til að nálgast gögnin, en það er í gegnum Facebook "app", sem segir notendum hvernig þeir eru skyldir íslenskum Facebook vinum sínum (að því gefnu að nöfn séu rétt og fæðingardagar sömuleiðis).
Það "app" má finna hér: http://www.facebook.com/apps/application.php?id=59508836986&ref=ts
Þegar bann við formerkingum kjötvara var þvingað í gegn var því haldið fram að það kæmi neytendum til góða.
Þvílíkt endemis kjaftæði.
Meðan formerkingar voru í gildi var auðvelt að bera saman verð á vörum - fólk fór inn í verslun og gat séð þau tilboð sem verslunin bauð, eða þann afslátt sem var veittur við kassann frá því verði sem var skráð á vöruna.
Neytandinn gat líka verið viss um að verslunin væri ekki að smyrja ofan á verðið.
En núna?  Þegar maður kemur í verslun og skoðar kjötborðið er mun erfiðara meta hvort "tilboð" verslunarinnar eru góð eða ekki - miðað við það verð sem gera má ráð fyrir að aðrir bjóði.
Verðskannarnir hafa hlotið nokkra gagnrýni, en ef þeir væru aflagðir, þa má í fyrsta lagi gera ráð fyrir að vörurnar myndu hækka í verði - það er nokkuð öruggt að aukakostnaði við verðmerkingar yrði velt beint yfir á kaupendur - og í öðru lagi myndi þetta engu breyta varðandi verðhækkanir verslana.
Nei, það er nokkuð ljóst að bannið við formerkingum var alger bjarnargreiði - gaf verslunum möguleika á að hækka verð án þess að kaupendur gætu séð það á auðveldan hátt.
Endemis forræðishyggjupólitík.
Í frétt mbl.is segir "Þeir sem kaupa sér vörur og þjónustu á netinu þurfa von bráðar að borga virðisaukaskatt af nánast öllu því sem þeir kaupa þar."
Púkanum sýnist þetta dæmigerð "ekki-frétt", því þeir sem kaupa sér vörur og þjónustu á netinu þurfa nú þegar að borga virðisaukaskatt af nánast öllu því sem þeir kaupa þar.
Ef fólk kaupir t.d. vörur á eBay, þá er virðisaukaskatturinn innheimtur hjá tollinum á Íslandi - nokkuð sem virðist hafa farið framhjá höfundi greinarinnar á mbl.is.
Einu undantekningarnar hingað til eru vegna rafrænnar afhendingar á vörum og þjónustu - nokkuð sem tollurinn hefur ekki getað gripið inn í, en þessari lagabreytingu er ætlað að stoppa upp í það gat.
Fyrir fyrirtæki sem kaupa t.d. þjónustu hjá Amazon Web services þá breytir þetta engu - þetta er eins og hver annar virðisaukaskattur af aðföngum sem þau fá endurgreiddan síðar.
Einstaklingar munu hins vegar þurfa að borga þennan virðisaukaskatt, en það eru ekki margir seljendur sem ná umræddu lágmarki í sölu til Íslands.  Í raun sýnist Púkanum að helstu áhrifin munu verða vegna kaupa á rafbókum frá Amazon.com og vegna kaupa á tónlist og öðru efni frá iTunes.
Ef heimasíðan er á heimasidan.is, húsnæðið heitir "Húsnæðið", þá er að mati Púkans bara eitt nafn sem kemur til greina á flokkinn....."Flokkurinn".
Auðlegðarskatturinn getur þýtt að einstaklingar séu krafðir um meiri skatt en nemur öllum tekjum þeirra.
Þetta getur t.d. átt sér stað hjá fólki sem er komið á efri ár og hefur engar aðrar tekjur en lífeyri, en á e.t.v. skuldlaust einbýlishús, sumarbústað og einhvern sparnað sem það hefur safnað á starfsævinni.
Svo er líka til í dæminu að "auðlegð" viðkomandi felist í eigin atvinnurekstri - fólk hefur e.t.v. byggt upp fyrirtæki, en í stað þess að skuldsetja það í botn og greiða sjálfu sér arð hefur verið valin sú leið að nýta allan hagnað í að byggja upp fyrirtækið, sem gæti verið sæmilega stöndugt, í skuldlausu atvinnuhúsnæði og með aðrar eignir - en allar þessar eignir fyritækisins teljast til auðlegðar eigandans, sem e.t.v. hefur engar aðrar tekjur en hófleg laun úr fyrirtækinu.
Í þannig tilviki getur auðlegðarskatturinn numið mun hærri upphæð en nemur tekjum eigandans.
Hvað á fólk í slíkri stöðu að gera - er ekki verið að refsa fólki fyrir að hafa byggt upp sinn rekstur í stað þess að taka út botnlausan arð og flytja allt á flókið net eignarhaldsfyrirtækja erlendis?
Hvers eiga þeir að gjalda sem hafa reynt að reka sín fyrirtæki á heiðarlegan hátt?  Af hverju ætti einhver í svona stöðu að kæra sig um að reka áfram fyrirtæki á Íslandi þegar hið opinbera vill hirða allt af honum sem hann þénar og meira til?
vandamálið og með því einu að skipta henni út muni allt færast til
betri vegar.
Endemis bull.
Stóra vandamálið hér á Íslandi
undanfarna áratugi - og ekki síst á árunum fyrir hrunið - var agalaus og
vanhæf stjórn ríkisfjármála og Seðlabankans.
Íslenska ríkinu
tókst á sínum tíma að klúðra einkavæðingu bankanna, Seðlabankinn brást
kolrangt við og Fjármálaeftirlitið stóð sig ekki í stykkinu.
Nákvæmlega hvað fór úrskeiðis er nokkuð sem efur verið lýst oft áður og ætti ekki að þurfa að endurtaka.
Krónan
er ekki sökudólgurinn í þessu máli, heldur saklaust fórnarlamb óhæfra
stjórnmálamanna sem Íslendingar voru nógu vitlausir til að kjósa yfir
sig.
Hin innistæðulausa hækkun krónunnar á sínum tíma var
afleiðing rangra ákvarðana hjá stjórnmálamönnum og Seðlabankanum og hið
óhjákvæmilega fall hennar var bein afleiðing sömu ákvarðana.
Nei,
að skipta út krónunni myndi ekki leysa neinn vanda ef hér verða áfram
við völd ráðamenn sem taka jafn arfavitlausar og agalausar ákvarðanir og
voru teknar á þeim tíma.
Það sem menn hefðu átt að gera á sínum
tíma - og ættu jafnvel að gera í dag - er að stefna að því að uppfylla
Maastrict skilyrðin - ekki í þeim tilgangi að mega taka upp evruna,
heldur vegna þess að þetta eru "góð" skilyrði, sem myndu neyða ráðamenn
til að taka upp agaðri vinnubrögð.
Íslenska þjóðin þurfti að læra
með sársaukafullum hætti að það er ekki endalaust hægt að lifa um efni
fram - nokkuð sem hefði verið unnt að koma í veg fyrir með meiri aga.
Vísindakirkjan hefur lítið að gera með vísindi -
en því meira með vísindaskáldsögur.  Þeir sem ganga í söfnuðinn fara í gegnum langt (og dýrt) ferli, en þegar fólk hefur loksins náð svokölluðu OT-3 stigi, þá fær það að heyra söguna af Xenu.
Sú saga er svona:
Einu
sinni fyrir langa löngu (fyrir 73 milljónum ára til að vera nákvæmur)
var einvaldur í geimnum sem nefndist Xenu.  Xenu stjórnaði öllum
plánetunum í okkar hluta Vetrarbrautarinnar, þar á meðal jörðinni, nema
hvað hún hét Teegeeack á þeim tíma.
Xenu átti við vandamál að
stríða.  Það var offjölgun á öllum plánetunum hans, eða um 178
milljarðar á hverri plánetu.  Xenu vildi leysa offjölgunarvandamálið og
hann var með áætlun.
Xenu tók sér einræðisvald og með aðstoð
geðlækna lét hann kalla eftir milljörðum lífvera til að skoða
skattaframtöl þeirra, en í staðinn var þeim gefin lömunarsprauta.
Síðan var þeim raðað í geimskip sem litu alveg eins út og DC-8 flugvélar, nema þær höfðu eldflaugahreyfla.
Þessum
geimskipum var síðan flogið til jarðarinnar, þar sem einstaklingunum
var staflað í kringum eldfjöll.  Þegar því var lokið var vetnissprengjum
komið fyrir í eldfjöllunum, þær sprengdar samtímis og allir voru
drepnir.
Sagan endar ekki hér. Þar sem þessar lífverur höfðu sálir
(þetana), þurfti að plata sálirnar til að koma ekki aftur.  Þeim var
því safnað saman með rafgildrum og þeim pakkað í kassa sem var farið með
í kvikmyndahús, þar sem sálirnar voru látnar eyða mörgum dögum í að
horfa á þrívíddarmyndir sem sögðu þeim að þær væru Guð, djöfullinn eða
Jesús.
Þegar myndasýningunni lauk og sálirnar yfirgáfu
kvikmyndahúsið hengu sálirnar saman, því þær höfðu séð sömu myndirnar og
héldu að þær væru sama veran.  Þessir sálnaklasar tengdust síðan þeim
líkömum sem enn voru til.
Hvað Xenu varðar, þá var hann að lokum
tekinn til fanga og lokaður inn í fjalli þar sem honum er haldið í
orkusviði sem er knúið af eilífðarrafhlöðu.
Svona
endar sagan - þetta er ástæðan fyrir öllum vandamálum mannanna - við
okkur hanga klasar af andlegum sníkjudýrum, sálir geimvera sem voru
sprengdar í tætlur.
Er þetta heimskuleg saga?  Já, en þetta er ein
af mikilvægustu trúarsetningum safnaðarins - stórisannleikurinn sem
meðlimir fá loksins að vita eftir veruleg fjárútlát og margra ára "
meðferð", þar sem þeir eru tengdir við lygamæli langtímum saman og
yfirheyrðir.
Það er ein góð röksemd fyrir afnámi verðtryggingar sem ekki hefur farið mikið fyrir, en ætti að mati Púkana skilið að fá meiri athygli.
Ef útlán eru verðtryggð, þá skiptir það lánastofnanir litlu hver verðbólgan er - hagsmunir þeirra eru tryggðir hvort sem hún sveiflast upp eða niður, því þeir munu alltaf fá sínar krónur til baka með verðbótum. Undir þessum kringumstæðum hefur lánastofnunin engan hvata til að gera sitt til að halda verðbólgunni niðri.
Ef útlán eru hins vegar með föstum vöxtum, þá er það hagur lánastofnunarinnar að verðbólgan lækki á lánstímanum og það skapar hvata fyrir lánastofnunina til að reyna að gera sitt til að halda verðbólgunni niðri, sem til lengri tíma er öllum í hag.
Það er hins vegar einn stór galli við afnám verðtryggingar - ef verðtryggð útlán verða afnumin, þá er hugsanlegt að verðtryggð innlán leggist einnig af og við förum aftur á það stig að eignir í banka brenni smám saman upp - það verður enginn hvati til að spara.
Það er reyndar akki mikill hvati til sparnaðar núna - vextir eru það lágir að fjármagnstekjuskattur og auðlegðarskattur étur upp alla ávöxtun.  Það er í gangi hrein eignaupptaka hjá þeim sem eru svo vitlausir að eiga pening í banka.
Púkinn auglýsir hér með eftir alþingismönnum (eða konum) sem þora að
leggja fram frumvarp um verulega hertar refsingar við akstri undir
áhrifum.
Það er ljóst að núverandi kerfi er ekki að virka, miðað
við fjölda þeirra ökumanna sem eru teknir nánast daglega - já og sumir
oftar en einu sinni á dag.
Sumir hafa verið sviptir ökuréttindum ævilangt en eru samt teknir aftur og aftur.
Hvað er til ráða?
Hér eru nokkrar tillögur:
1)
Meðferð.  Það mætti skikka þá sem eru teknir undir áhrifum í meðferð.
Ef eina ráðið til að fólki skiljist að það á við vandamál að stríða er
að vera sendir í meðferð á viðeigandi stofnun, þá verður bara svo að
vera.
2) Kyrrsetning bifreiða.  Púkinn er þeirrar skoðunar að
sé einhver tekinn undir áhrifum, eigi skilyrðislaust að kyrrsetja
bifreiðina um tíma - það myndi a.m.k. koma í veg fyrir að menn séu
teknir oftar en einu sinni á dag á sömu bifreiðinni.  Lögreglan hefur í
dag heimild til að kyrrsetja eða leggja hald á bifreiðar, en það er ekki
nóg - Púkinn vill sjá þeirri heimild breytt í skyldu.
3) Upptaka
bifreiðar.  Það má rökstyðja að bílar þeir sem um ræðir séu ekkert
annað en tæki sem notuð eru til að fremja með afbrot.  Púkans vegna
mætti gera bílana upptæka og selja á uppboðum - fá þannig einhverjar
krónur í kassann til að standa undir kostnaðinum við þær aðgerðir sem
hér er lýst.  Það þarf að vísu að hafa undantekningar þegar um
bílþjófnað er að ræða og einnig þarf að huga að stöðu og ábyrgð bílasala sem lána
bíla til aðila sem aka þeim síðan undir áhrifum.  Það að fyrri
eigendurnir verða áfram að borga af bílalánunum eftir að hafa misst
bílana er að sjálfsögðu bagalegt fyrir viðkomandi, en það er nú einu
sinni tilgangurinn.
4) Samfélagsþjónusta.  Eitthvað af þessu liði mætti t.d. nota til skúringa á Grensásdeild og öðrum slíkum stöðum - hugsanlega átta einhverjir sig þá á mögulegurm afleiðingum svona hegðunar.
5) Fangelsisvist. Glæfraakstur undir áhrifum
er að mati Púkans lítið annað en tilraun til manndráps.  Refsingar ættu
að vera í samræmi við það - ef það eina sem dugir til að vernda
þjóðfélagið gegn viðkomandi er að henda þeim bak við lás og slá, þá
verður svo að vera.
Púkinn vill benda á að hækkaðar sektir eru
ekki á ofanfarandi lista, enda eru einhverjir stútanna væntanlega
eignalausir aumingjar.  Í þeim tilvikum sem þeir eiga eignir mætti þó beita hærri sektum, jafnvel í
hlutfalli við tekjur viðkomandi - sekta menn um 5-10% árstekna til
dæmis.
Ef ekkert verður gert munum við bara halda áfram að heyra
sömu fréttirnar aftur og aftur, ásamt fréttum af dapurlegum dauðaslysum
inn á milli.
Hvaða alþingismenn þora að gera eitthvað í þessu máli?
Púkinn er þeirrar skoðunar að það sé ekki hundurinn sem er vandamálið, heldur eigandinn.
Það er eitthvað verulega mikið að fólki sem leyfir hundunum sínum að ganga lausum þegar þeir eru með hegðunarvandamál eins og umræddur Golíat.
Samkvæmt fréttinni virðist hundurinn ítrekað hafa strokið, en það er á ábyrgð eigandans að halda honum innandyra, á afgirtu svæði eða tjóðruðum.
Afsakanir um að hundurinn sé bara strokgjarn eru ekki ásættanlegar - svona fólk kemur óorði á ábyrga hundaeigendur.
Hvernig væri að sekta svona eigendur um einhverja sæmilega upphæð - einhverjar tugþúsundir í hvert sinn sem hundurinn "strýkur "?
Morgunblaðið lét gabba sig - eins og fleiri fjölmiðlar - gerði "frétt" úr auglýsingabrellu.
Sjá hér: http://www.guardian.co.uk/politics/reality-check-with-polly-curtis/2011/oct/20/monster-slipper-stunt?CMP=twt_gu
Ótrúlegt en satt - ráðherra í ríkisstjórn Íslands tók vitræna ákvörðun.
Púkinn er þeirrar skoðunar að sjálfvirk skráning barna í trúfélag móður sé tímaskekkja, sem hefði átt að vera búið að leiðrétta fyrir löngu.
Þetta er álíka fáránlegt og ef börn væru sjálfkrafa skrað í stjórnmálaflokk föður.
Þeir foreldrar sem taka trú sína alvarlega (en vonandi fer þeim nú fækkandi) geta að sjálfsögðu skráð börn sín í sín í hvaða trúfélög sem þeim sýnist - og börnin síðan skráð sig sjálf úr þem ef þau vilja þegar þau hafa aldur og þroska til, þannig að þetta breytir í raun litlu fyrir þann hóp.
Helstu áhrifin verða á þá sem eru "hagstofutrúaðir" - eru gjarnan skráðir þjórkirkjuna, en leiða hugann sjaldan að því eða þá trúmálum yfirleitt.
Púkinn fagnar því að börn þeirra séu ekki skráð sjálfkrafa í trúfélög.
Enn eitt lítið skref í rétta átt.