Erlendar sjónvarpsáskriftir á Íslandi

sky.jpgHér á Íslandi eru margir áskrifendur Sky gervihnattaþjónustunnar - áskrifendur að nýjustu þáttunum, kvikmyndunum og íþróttaviðburðunum, en lagaleg staða þessa sjónvarpsgláps hefur verið nokkuð óviss.

Þessi tæki eru seld hér á landi, en notendurnir verða að fara krókaleiðir til að kaupa áskriftina.

Ennfremur hafa einhverjir haldið því fram að þetta sjónvarpsgláp sé í rauninni lögbrot - þeir sem vilja horfa á þetta efni megi ekki gera það í gegnum breskar stöðvar, heldur verði að kaupa sér aðgang í gegnum rétta aðila á íslandi - Stöð 2 eða aðra.

Púkinn veltir hins vegar fyrir sér hvort þessi dómur hafi ekki ákveðið fordæmisgildi - ef Bretar mega kaupa sér þjónustu frá Grikklandi, mega Íslendingar þá ekki kaupa sams konar þjónustu frá Bretum?

Púkinn er ekki lögfræðingur og ætlar ekki að fullyrða neitt um þetta...en það má velta þessu fyrir sér.


mbl.is Mega kaupa ódýrari áskrift að enska boltanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Athyglisvert

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.10.2011 kl. 13:40

2 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Enda er verðið sem sjónvarpstöðvar,  Stöð 2 og BSky sem dæmi, borga fyrir sýningarréttinn algjör firra og sömuleiðis hvað þessar stöðvar eru svo að rukka fyrir áskriftina.  1000 Pund á mánuði fyrir áskrift af boltanum fyrir pöbba.. algjört rugl.  Skil konuna vel að hafa fengið sér Grískt "pöbba" kort á 800 Pund fyrir árið.

Jóhannes H. Laxdal, 4.10.2011 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband