Óhæfur ráðherra

Þegar viðskiptaráðherra segist ekki hafa vitað af KPMG og Glitni eru aðeins tveir möguleikar í stöðunni.

Annað hvort er maðurinn að ljúga eða hann veldur ekki starfi sínu.

Niðurstaðan er hins vegar ein og hin sama í báðum tilvikum - hann ætti að segja af sér.  Ef hér á Íslandi væri vottur að heiðarleika í stjórnkerfinu væri hann búinn að því, en miðað við hvernig kaupin gerast á eyrinni mun hann að sjálfsögðu sitja sem fastast.

(Fjármálaráðherra, stjórn Seðlabankans og yfirmenn Fjármálaeftirlitsins ættu að vísu að fjúka líka, en að hluta til af öðrum ástæðum)


mbl.is Björgvin vissi ekki um KPMG fyrr en í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg

Hann situr að öllum líkindum sem fastast því við búum jú í bananalýðveldi :(

Sigurbjörg, 9.12.2008 kl. 22:07

2 Smámynd:

Menn segja ekki af sér á Íslandi - punktur. Sem segir náttúrlega sína sögu af spillingu og séríslensri sérhlífni.

, 9.12.2008 kl. 23:02

3 identicon

Það er rétt hjá þér - en þeir ætla að komst upp með hvítþvottabækur og sömu trixin og í aðdragandanum - tala stórt en gera fátt nema bjarga hinum hugumstóru (viðhalda bankaleynd) og þegja svo allir í samstilltum kór - meðan enginn bendir fingri, þá eru þeir öruggir.  Þeim meira að segja tókst að halda stillingu sinni þegar Davíð benti fingrum í allar áttir.

Ég vil sjá stjórnanda Púkans með anarkistaungmennunum í aðgerðum sínum, og fleiri fullorðna, ábyrga einstaklinga sem ganga fram (einnig með fótum sínum) og krefjast ábyrgðar af okkar kjörnu fulltrúum, jafnt sem embættismönnum.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 09:34

4 Smámynd: Skarfurinn

Það hefur komið fram að frétt Helga Seljan í Kastljósi var röng, ráðherrann vissi um rannsókn KPMG á Glitni en hins vegar virðist hann ekki hafa vitað um þessi hagsmunatengsl að sögn sem er ekki alveg sama mál þótt skylt sé.

Skarfurinn, 10.12.2008 kl. 13:34

5 Smámynd: Kebblari

Ráðherrann fær plús fyrir að neita að selja KB Lux nema skattrannsóknastjóri fái öll nauðsynleg gögn.

Kebblari, 10.12.2008 kl. 16:03

6 Smámynd: Einar Jón

Myndi það ekki spara mikinn tíma ef ráðherrann myndi bara skrifa niður allt sem hann vissi um bankahrunið, í stað þess að vera með endalausar fréttir um allt sem hann vissi ekki?

Það kæmist örugglega á A4 blað, svo hann gæti prentað það aftan á uppsagnarbréfið sitt til að spara pappír.

Einar Jón, 12.12.2008 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband