Miðvikudagur, 14. mars 2007
Bruðl dagsins - það er gaman í baði
Eins og Púkinn sagði frá í gær, mun hann reglulega benda íslenskum bruðlurum og öðrum áhugasömum á margvíslegan skemmtilegan óþarfa.
Óþarfi dagsins er baðker með innbyggðu sjónvarpi, útvarpi, DVD spilara og stafrænum hitamæli.
Ýmsar útgáfur eru í boði en sú sem myndin hér er af er frá Kóreu og myndi kosta um hálfa millján komin hingað til lands.
Sé þetta ekki nægjanlega flott, má benda á bandarískt fyrirtæki sem nefnist CalSpa, en þeir framleiða nuddpotta með innbyggðu heimabíói. Aðeins þarf að ýta á einn takka og þá rís upp 42" flatskjár ásamt fullkomnu hljómflutningskerfi.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Sjónvarp, Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 14:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.