Föstudagur, 27. apríl 2007
Guðfræðilegar rannsóknir?
Púkinn á ofurlítið bágt með að skilja eðli guðfræðilegra rannsókna. Gott og blessað ef rannsóknirnar byggja á einhverju áþreifanlegu, svo sem samamburði á gömlum handritabrotum, en hvernig "rannsóknir" geta leitt eitthvað í ljós um tilvist Limbo er Púkanum hulin ráðgáta.
Menn myndu hlæja sig máttlaus ef út kæmi niðurstaða eftir áratuga rannsóknir á jólasveinunum og fjölskyldu þeirra þar sem komist væri að þeirri niðurstöðu að í rauninni borðaði Grýla ekki óþekk börn - nún bara lokaði þau inni.
Að nota orðið "rannsóknir" yfir svona kjaftæði jaðrar við að vera móðgun gagnvart öllum þeim vísindamönnum sem stunda raunverulegar rannsóknir á raunverulegum fyrirbærum.
Púkanum stendur reyndar rétt á sama um vandræðaganginn hjá Vatíkaninu, enda er hann ekki kristinn, hvað þá kaþólskur.
Það er hins vegar von Púkans að svona umræða verði til að vekja einhverja til umhugsunar um á hversu veikum fótum öll trúarbrögð heims standa í raun - ef einhverjir fara að hugsa sjálfstætt í staðinn fyrir að taka mark á árþúsunda gömlum skáldsögum er það gott mál.
Óskírð börn ekki lengur í forgarði vítis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:07 | Facebook
Athugasemdir
Þó sumir trúi ekki þá eru samt margir sem gera það og sannfæring þeirra er ein af staðreyndum lífsins. Ég geri ráð fyrir að guðfræðilegar rannsóknir gangi út á að rannsaka allar heimildir um tiltekin atriði og komast að því á hve sterkum grunni þær standa kenningalega.
Kenningin um Limbó hefur aldrei verið skilgreind sem kennisetning kirkjunnar. Hún var guðfræðileg tilgáta sem að mestu hvíldi á kenningu hl. Ágústínusar um erfðasyndina en var hafnað sem boðun fyrir löngu og guðfræði nútímans hafnar henni. Þetta kom fram í frétt mbl en hefði mátt gera það með enn skýrari hætti. Sjá hér: [1]
Ragnar Geir Brynjólfsson, 27.4.2007 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.