Föstudagur, 25. maí 2007
Ungfrú Barbiedúkka
Í tilefni af "Ungfrú Ísland" keppninni þar sem stúlkur ganga fram og aftur eins og Barbiedúkkur með innantóm bros, fannst Púkanum tilvalið að benda á þessa "Íslensku" Barbiedúkku sem er í boði á Ebay (sjá þennan hlekk). en hún mun víst vera 21 árs um þessar mundir og á sambærilegum aldri og keppendurnir.
Reyndar virðist hún bara nokkuð lík sumum þeirra.
Meginflokkur: Sjónvarp | Aukaflokkar: Lífstíll, Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Mér finnst þetta mun betri kostur www.realdoll.com en íslensk barbie... og hugsdanlega betri en ungfrú ísland
DoctorE (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 15:15
almáttugur doktorE hverskonar sori er þetta??? þessu þarf femínistafélagið sko að heyra af
ég er mjög hneyksluð!
halkatla, 25.5.2007 kl. 16:01
Well eins og þú veist þá ræðst svona ósómi á mann á netinu, maður er í sakleysi sínu að lesa fréttir og BANG hjálpartæki og þaðan af verra er komið á skjáinn ;)
DoctorE (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 16:16
Mér finnst nú nokkuð merkilegt að það skuli vera til svona barbiedúkka í íslenskum búning. Athyglisvert!
Sigurður Viktor Úlfarsson, 25.5.2007 kl. 18:59
Held að stelpurnar í ungfrú ísland séu nokkuð yngri en þessi fagra snót......þar að auki myndu þær aldrei láta sjá sig í svona efnismiklum þjóðbúning!
Eva Þorsteinsdóttir, 25.5.2007 kl. 19:25
Góður punktur hjá Ólafi Skorrdal.......... segi ég þótt ég sé kona. Og góður punktur líka hjá Evu. Sá reyndar að tilboðið í barbie hina íslensku á e-bay var komið upp í 23 dollara. Ekki vinsæl greinilega. Hefði þyrft að vera fáklæddari kannski
Margrét St Hafsteinsdóttir, 25.5.2007 kl. 22:52
Ég tók þátt í keppninni ,,ungfrú Barbiedúkka" og það er skemmst frá því að segja að ég var valinn óvinsælasta stúlkan...
Sigurjón, 29.5.2007 kl. 23:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.