Þriðjudagur, 5. júní 2007
Að veiða svikahrapp
Samhliða fjölgun fjársvikapósta á netinu, þá fjölgar þeim sem stunda þá "íþróttagrein" að veiða svikahrappa - fá þá til að standa í stöðugum bréfaskriftum og beita þeirra eigin aðferðum gegn þeim. Svikahrapparnir gera jú út á græðgi annarra, en fórnarlömbin geta líka leikið þann leik.
Á vefnum má finna margar góðar sögur um slíkt, en sem dæmi um slíka má taka bréfaskriftir þar sem einhver vafasamur aðili í Nígeríu er að reyna að svíkja pening út úr Fred Flintstone og Wilmu konu hans. (sjá þennan hlekk), en það eru mörg önnur svipuð dæmi á Scamorama.com síðunni.
Hafi einhverjir hér á landi hug á að stunda svikahrappaveiðar, eru nokkrar reglur sem þarf að fylgja, en mikilvægast af öllu er að gefa ekki upp rétt nafn, símanúmer eða heimilisfang í bréfaskrifunum og helst senda póstinn frá órekjanlegu hotmail póstfangi eða öðru slíku - þetta eru glæpamenn og ef einhver ætlar að gera þá að fíflum er augljóslega ekki gott að þeir viti hver viðkomandi raunverulega er.
Ný hrina fjársvikatölvupósta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Vefurinn | Aukaflokkur: Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:11 | Facebook
Athugasemdir
Líklega er þetta bara leiðin Friðrik. Snúa þessum ósóma upp á þá. Spurningin er bara sú hverjir nenna að standa í því að gera sér þetta að áhugamáli?
Haukur Nikulásson, 5.6.2007 kl. 23:15
Það sem verst með svikahrappana er ef nægilega margir svara þeim. Málið er að sem stendur er það tímalega hagkvæmt að stunda svona iðju þar sem merkis-suð hlutfallið fyrir þá er hátt. Ef netverjar tækju sig til og drekktu þeim í fölskum undirtektum og sneri við merkis-suð hlutfallinu þá væri þetta ekki hagkvæmt lengur og iðjan legðist af.
Árni Steingrímur Sigurðsson, 6.6.2007 kl. 08:54
Þeta átti náttúrulega að vera FYRIR, ekki með (úbs, púkinn bjargar ekki svona auðveldlega )
Árni Steingrímur Sigurðsson, 6.6.2007 kl. 08:55
Athugasemdir 2 og 3 eiga líka við um SPAM eða ruslpóst. Því miður eru nógu margir sem svara spam-i til að það borgar sig fyrir spammerana að senda ruslið út. Það getur verið nóg að 100 til 500 svari af *TUTTUGU MILLJÓN RUSLPÓSTSKEYTA* til að það borgi sig fyrir spammer að senda út.
Einar Indriðason, 6.6.2007 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.