Laugardagur, 10. febrúar 2007
Varfærni er góð
Norðmenn hafa aldrei verið þekktir fyrir ævintýramennsku - að minnsta kosti ekki eftir að víkingatímabilinu lauk. Efnahagsmál þeirra eru líka í góðu lagi, peningum safnað í sjóði og verðbólgan og vextir í góðu lagi.
Nú snerta íslensku hávextirnir Púkann ekki beint, enda skuldar henn ekki neinum neitt - hver myndi líka vilja lána litlu bláu kríli pening - en hins vegar getur Púkinn ekki annað en velt fyrir sér hvað það er sem Norðmenn eru að gera rétt og Íslendingar gætu lært af þeim.
Kannski Íslendingar ættu bara að reka seðlabankastjórana sína og semja við Norðmenn um að stjórna þeim.
Heia Norge!
Verðlag og verðbólga lækka í Noregi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.2.2007 kl. 10:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.