Aumingja Britney

britney-explanation12070601Púkinn getur ekki gert að því að hann vorkennir þessu stelpugreyi, sem hefur lítið gert merkilegt undanfarin ár annað en að "skandalísera".

Það var til dæmis gósentíð hjá slóðurblöðunum þegar þau náðu myndum af henni nærbuxnalausri að fara inn í bíl, en eftir það birtist meðfylgjandi svar á vefsíðunni hennar

Þótt Púkinn hafi nú engan sérstakan áhuga á að fylgjast með Britney, frekar en Paris Hilton, og hvað sem þær heita nú allar þessar ríku, frægu, og ofdekruðu stelpur, sem hafa lent í vandræðum með að höndla athyglina sem þær hafa fengið, þá hefur hann eina ákveðna skoðun á málinu:

Þessar stelpur þurfa á hjálp að halda.


mbl.is Britney snoðklippt á húðflúrsstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nýjustu fréttir eru þær að henni hafi verið nauðgað á skemmtistað. Talað um að seinustu daga hafi hún ekki viljað að fólk snerti sig og svo endað með því að snoða sig.

 Getur vel verið að þetta sé bara slúður, en þó er það alveg skólabókadæmi að konur reyni að minnka kynþokkann eftir svona lífsreynslu.

Geiri (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband