Þriðjudagur, 13. mars 2007
Réttfyrirkosninganefnd?
..að skipa nefnd til að fjalla um leiðir til að...
Óskapleg kosningalykt er af þessu máli. Nú er ég ekki að segja að það sé allt í lagi með atvinnulífið á Vestfjörðum, síður en svo.
Vestfirðingar vita vel að stjórnmálamenn eru aldrei jafn reiðubúnir til að hlusta á kjósendur eins og rétt fyrir kosningar. Stjórnmálamennirnir vita líka að þeir verða að halda atkvæðunum sínum góðum - það gengur ekki að tapa þeim burt svona á endasprettinum.
Kanski er Púkinn bara svona skeptískur að eðlisfari, en heldur virkilega einhver í alvöru að svona nefnd geri eitthvað raunverulegt gagn? Jú, jú, hún gæti búið til fallega skýrslu á gæðapappír, með mörgum línuritum, en eru einhverjar líkur að niðurstaðan verði eitthvað sem getur snúið við hinni stöðugu hnignun margra vestfirskra byggða?
Púkinn efast um það.
Athugasemdir
Gott heiti á þessum vornefndum. Stel þessu í næsta blogg!
Haukur Nikulásson, 13.3.2007 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.