Miðvikudagur, 25. apríl 2007
Hverjir skyldu nú tapa?
Púkinn er svolítið gamaldags að sumu leyti og eitt einkenna þess er að hann forðast eins og hann getur að taka lán. Hvað gengistryggðu lánin varðar, þá er hins vegar eitt sem er alveg ljóst - þeir sem eru að bjóða þau eru engar góðgerðarstofnanir og ætla sér ekki að tapa á þeim - nei, ef einhverjir tapa munu það verða lántakendurnir.
Íslenska ofurkrónan er of hátt skráð - það er ekki spurning um hvort hún muni falla, heldur hvenær og hversu mikið - og jafnvel enn fremur hvort útgefendur jöklabréfanna muni fælast og forða sér burtu, þrátt fyrir vaxtaminunn, sem gæti valdið enn frekara falli.
Verði gengisfallið umtalsvert gætu ýmsir vaknað upp við vondan draum með sín gengistryggðu lán.
Gengistryggð lán eru hins vegar fullkomlega rökréttur valkostur fyrir suma - svo sem starfsmenn Straums-Burðaráss, sem haafa valið að fá laun sín greidd í erlendri mynt. Áhættan af gengisfalli er engin og vextirnir eru mun lægri en annars bjóðast.
Heimilin í landinu taka gengistryggð lán í auknum mæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Voðalega finnst mér það eitthvða vægast sagt undarlegt að getað ekki komið fram undir nafni, allavega að það sé í Höfundarupplýsingum, það er að mestu ein típa af fólki sem hefur sig í frammi á vefsíðum annarra og gerir það í nafnleind.
Þótt mér komi það ekkert sérstaklega við ætla ég að inna þig eftir því hevað þú hefurað fela, eða hver ástæðan sé fyrir þessari launung? Bestu kv. Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson., 25.4.2007 kl. 18:46
Hu? Það er ekkert leyndarmál hver ég er og ef þú smellir á púkamyndina sérðu það.
Púkinn, 25.4.2007 kl. 19:13
Mig grunar nú að þú ættir bara að smella þar á sjálfur, þar kemur nafn þitt ekki fram, og ekkert um þig nema vinnustaður.
Sigfús Sigurþórsson., 25.4.2007 kl. 20:42
Ég held þú hafir nú aðeins hlaupið á þig þarna.
Púkinn, 26.4.2007 kl. 09:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.