Laugardagur, 19. maí 2007
Leggjum niður Flateyri
Sumir vilja kenna fiskveiðistjórnunarkerfinu einu um stöðu mála á Flateyri, en Púkinn horfir til fleiri þátta - íslenska ofurkrónan og hátt vaxtastig á einnig sinn þátt.
Nú er sagt að gengi krónunnar muni haldast hátt út árið 2008 - fari svo, þá er Púkinn hræddur um að Flateyri verði ekki eina byggðarlagið sem verði lagt niður og lítið verði eftir af mörgum útflutningsfyrirtækjum.
En það að breyta blómlegum fyrirtækjum í rústir heitir víst bara "eðlileg ruðningsáhrif" - að minnsta kosti meðan það snertir ekki mann sjálfan.
Minn tími í sjávarútvegi er liðinn" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Takk fyrir að hafa áhuga á málefnum Vestfjarða. Það sem er að gerast hér er málefni allrar þjóðarinnar, ekki bara okkar hérna fyrir vestan.
Við hér á svæðinu erum að spyrna við af öllum kröftum, þeir virðast ekki duga til.
Spyrnum öll við Íslensk þjóð!Vestfirðir, 19.5.2007 kl. 14:18
Það sem fer upp kemur niður aftur. Þannig er gengi pundsins. Það þarf að safna til mögru áranna
Norðanmaður, 20.5.2007 kl. 00:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.