Að treysta mönnum....eða ekki

arnijohnsenÞað er ljóst að Þjóðhátíðarnefndin í Vestmannaeyjum treystir ekki Árna Johnsen til að koma fram sem kynnir.   Það er ennfremur ljóst að stór hópur fólks sunnanlands treystir Árna til starfa á Alþingi - starfa sem maður myndi nú ætla að væru mikilvægari.

Það er eitthvað að hér.

Fleira ætlar Púkinn ekki að segja um þetta mál, enda væri málið þá fljótt að enda í ómálefnalegum upphrópunum.


mbl.is Segjast ekki hafa treyst sér lengur til að bera ábyrgð á Árna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Svona í tilefni helgarinnar, staðarins, mannsins... "Nei þýðir Nei!"

Einar Indriðason, 2.8.2007 kl. 20:33

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ég er nú ekki sérlega hissa ... þetta er mútuþægur þjófur sem var auk þess dæmdur fyrir skilasvik og er með ævintýrapersónuna Jesú á heilanum og er á þingi fyrir íhaldið eins og ekkert sé.

Baldur Fjölnisson, 2.8.2007 kl. 21:21

3 Smámynd: Halla Rut

En hvað þetta er falleg mynd sem fylgir blogginu þínu. Það er eins og Árni sé að iðrast. En það er jú einu sinni það sem fer mest fyrir brjóstið á þjóðinni, hann iðrast ekki. 

Halla Rut , 3.8.2007 kl. 00:22

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ég held að Halla Rut hafi hitt naglann á höfuðið.  
Árni fékk góða útkomu í prófkjörinu en síðan kom þessi hrokafulla yfirlýsing um  „Tæknileg mistök“ og þá dró fólk einfaldlega til baka áður veitta fyrirgefningu.

Nokkrar útstrikanir í viðbót og Árni hefði færst neðar á listann og ekki komist á þing.

Grímur Kjartansson, 3.8.2007 kl. 11:41

5 Smámynd: Skarfurinn

Að mínu mati voru það stærstu mistök Geirs Haarde á sínum tíma að fleygja Johnsen ekki af listanum, en hann skorti kjark til þess því miður. 

Skarfurinn, 7.8.2007 kl. 17:41

6 Smámynd: Þórunn Elíasdóttir

Mætti halda að það væri kostur hjá sunnlendingum(að fráteknum vestmannaeyingum) að vera þjófur

Þórunn Elíasdóttir, 16.8.2007 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband