Laugardagur, 25. ágúst 2007
Bruðl dagsins: E 175
Sum leyfileg bætiefni í mat eru meinlaus, önnur skaðleg, eins og tjörulitarefnin sem Púkinn minntist á nýlega. Eitt efni fær þó umsögnina "meinlaust en dýrt".
Það gerir umrætt efni því nauðsynlegt í mat og drykk þeirra sem hafa of marga aura í vasanum og of lítið vit í kollinum.
Og hvað er þetta?
Jú, að sjálfsögðu ... gull. Ef innihaldslýsing á mat eða drykk inniheldur "E 175" er þar um gull að ræða.
Hingað til hefur það aðallega verið notað í sælgæti, en nú er líka hægt að innbyrða það í fljótandi formi, samanber meðfylgjandi mynd af frönsku gullvodka sem er nýkomið á markaðinn.
Það er nú munur að geta drukkið þetta og geta síðan í framhaldinu skitið gulli.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Ég huxa að ég myndi reyna að eima gullið úr vodkanum, drekka vodkann og selja gullið...
Sigurjón, 25.8.2007 kl. 14:57
Öllu heldur eima vodkann frá gullinu, þar sem hann er með umtalsvert lægra suðumark en gullið.
Sigurjón, 25.8.2007 kl. 14:58
Það þarf nú ekki að eima neitt,þar sem gullið leysist ekki upp - það má bara sía það í burtu. Hitt er annað mál að það myndi nú ekki borga sig - Gullvodkað er ekkert seérstaklega ódýrt.
Púkinn, 25.8.2007 kl. 15:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.