Íslenskir rasistar og aðrir aumingjar

racistÞað er því miður staðreynd að rasismi er eitt af þeim vandamálum sem fer vaxandi hér á Íslandi og kemur meðal annars fram í nýlegri opnun tiltekinnar vefsíðu.

Það er að sjálfsögðu möguleiki að þessi vefsíða (skapari.com) sé bara ætluð sem brandari - svona einhver misheppnaður unglingahúmor til að athuga hvað hægt er að fá marga til að æsa sig upp yfir þessu, en Púkinn er hálf-hræddur um að sú sé ekki raunin - þessum greyjum sem standa að síðunni gæti verið fúlasta alvara.

Það er nú annars spurning hverjir raunverulega standa að síðunni, því skráður eigandi hennar er þekktur bandaríkur rasisti: 

 Hal Turner Radio Show 
  1906 Paterson Plank Road
   North Bergen, NJ 07047
   US

Hal þessi er frekar ómerkilegur og óskemmtilegur náungi, frægur fyrir hótanir og að hvetja til ofbeldis, eins og til dæmis þegar hann birti heimilisfang Joan Lefkow, dómara í máli gegn Sköpunarkirkirkjunni, en skömmu síðar var brotist inn hjá dómaranum og eiginmaður hennar og móðir skotin til bana.  "Sköpunarkirkja" þessi er reyndar tæplega kirkja sem slík, heldur bara samtök rasista sem hika ekki við að beita ofbeldi, en tengslin milli hennar og skapari.com eru nokkuð augljós.

Væntanlega eru nú einhverjir stuðningsmenn þeirra hér á Íslandi, því efnið er á íslensku, þótt ekki beri orðaforðinn né málfarið nú vott um að nein andleg mikilmenni sé að ræða.

Þetta er í stuttu máli frekar ógeðfelldur félagsskapur einstaklinga með minnimáttarkennd -  en Púkanum sýnist ekki minni ástæða til að hafa áhyggjur af þeim en t.d. þessum útsendurum Hell's Angels sem voru gerðir afturrækir nýlega.

Halló, Björn Bjarnason, hvernig væri nú að skoða þetta mál?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Þetta er nú meiri ófögnuðurinn Allt ofstæki er hættulegt og leiðir ekkert annað af sér en harmleiki.

Ég held að það sé verið að rannsaka þetta mál. 

Margrét St Hafsteinsdóttir, 12.11.2007 kl. 21:50

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er verið að rannsaka málið og leita að rithöfundunum (hm).  Það hefur aldrei þurft neina akademiska menntun né náttúrugáfur (ef út í það er farið) til að kynda undir fordómum gegn kynþáttum eða öðru.  Þessi óþverri ólgar undir yfirborðinu, því miður.

Takk fyrir pistil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.11.2007 kl. 01:05

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Nei, það þarf alls engar gáfur til að vera með svona ógeðslegan þvætting, eins og á þessari síðu, það þarf eitthvað allt annað sem eðlilegt fólk hefur ekki.

Jónína Dúadóttir, 13.11.2007 kl. 08:15

4 Smámynd: Haukurinn

Vissulega er vert að athuga hverjir þessir einstaklingar eru, en víst er að þeir hafa búið þannig um hnútana að erfitt verður að komast að því um hverja er að ræða.

Einstaklega hugrakkt að telja sig hafa skoðun, en þora svo ekki að koma fram undir nafni þegar hún er svo viðruð.

Sá líka að þeir halda því fram að eingöngu hvítt fólk af norrænum kynstofni hafi komið til Íslands, s.s. þá algerlega án keltneskra þræla. Eru þá keltneskir hvítir lægri en norrænir hvítir? Hvað með Dani, sem eru blanda af norrænum hvítum og þýðverskum hvítum? Ótrúlegt að þessi endalausa kynþáttavitleysa skuli alltaf halda velli. Var ekki fyrsta mannveran svört - eða á maður kannski að búast við því að fyrstu íbúar Afríku hafi verið ljóshærðir og bláeygðir svíar?

Endalaus kynþáttahatursteypa....

Haukurinn, 13.11.2007 kl. 08:36

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þessi síða fær fyrstu verðlaun fyrir að vera sú FUCKING ÓGEÐSLEGASTA! Djö....fífl og mannvonska og aumingjar og og og ...gæti haldið endalaust áfram!

Heiða Þórðar, 13.11.2007 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband