85% alkóhól á bílana!

E85_logoSumum finnst það nú sjálfsagt sóun á góðu 85% alkóhóli að nota það sem eldsneyti á bíla, en þessi eldsneytisblanda mun nú ekki vera drykkjarhæf - fyrir utan 85% spírann er jú 15% bensín í blöndunni auk litarefna og hugsanlega jafnvel tréspíra.

Púkanum finnst hins vegar merkilegt að það er alls ekki nýtt að framleiða bíla sem geta bæði brennt bensíni og etanóli.  Ford Model T bíllinn var til dæmis einnig framleiddur fyrir bændur sem gátu framleitt sitt eigið etanól, en nú eru næstum 100 ár síðan hann fór í framleiðslu.


mbl.is Brátt hægt að dæla etanóli á bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband