Tímabundnar launalækkanir

Ósköp finnst Púkanum nú skítt að forsætisráðherra sé bara að biðja um tímabundna launalækkun (til 12 mánaða) fyrir sig og sitt fólk.

Lifir hann virkilega í þeirri blekkingu að allt verði orðið gott aftur eftir 12 mánuði og þá megi hækka launin hans aftur og allt verði gleymt?

Púkinn spyr nú bara svona - en lætur öðrum eftir að svara.


mbl.is Engin niðurstaða hjá Kjararáði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Jóna Traustadóttir

Ég kalla þetta að vera "illa" veruleikafyrrtur.......

Inga Jóna Traustadóttir, 25.11.2008 kl. 17:13

2 identicon

Miklu einfaldara væri að setja á hátekjuskatt.

Það bendir margt til þess að forsætisráðherra lifi í mikilli blekkingu. Ljóst er að vandamálin munu fara vaxandi næstu árin og botninn verður líklega löngu síðar.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 18:06

3 Smámynd: Púkinn

Það eru nokkur vandamál við hátekjuskatt.  Hann hefur tilhneigingu til að lenda ekki á þeim sem eru með "ofurlaun", því þeir geta oft ráðið hvaðan/hvernig þeir hafa tekjur sínar og geta sett hlutina þannig upp að þeir borgi bara fjármagnstekjuskatt.  Þess í stað gæti skatturinn lent á fólki með tekjur í góðu meðaltali, sem er að reyna að auka við sig vinnuna t.d. til að fjármagna húsbyggingar eða eitthvað slíkt.

Svo má hátekjuskatturinn ekki fara út í öfgar - þá hrekur hann bara fólk og fyrirtæki úr landi.

Púkinn, 25.11.2008 kl. 19:13

4 Smámynd: Kebblari

Ég held að þetta sé nú ekki illa meint hjá kallinum. Þetta er líklega (í %) sá samdráttur sem ísl. ríkið þarf að taka á sig á ári, næstu 3 - 5 árin að raungildi.

Kebblari, 25.11.2008 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband