Þriðjudagur, 20. maí 2008
Myndasaga Sigmunds og meintur rasismi Íslendinga
Púkanum finnst athyglivert að skoða viðbrögðin við myndasögunni í ljósi skoðanakönnunarinnar á Íslandi um það hvern fólk myndi vilja sjá sem næsta forseta Bandaríkjanna - hvern myndu Íslendingar kjósa ef þeir hefðu kosningarétt þar.
Niðurstöðurnar voru þannig að Clinton og Obama voru nánast jöfn, með um 48% atkvæða hvort, en McCain fékk um 4%.
Það má líta á þetta á ýmsa vegu, eins og að Íslendingar séu það langt til vinstri á mælikvarða bandarískra stjórnmála að margir þeirra sem teljast hægrimenn hér myndu teljast teljast til vinstri við miðju í Bandaríkjunum - já og vinstrimennirnir okkar myndu teljast sjálfsagt hættulegir öfgamenn þar.
Það má líka líta þannig á að sá fókus sem er á húðlit eða kyn frambjóðendanna sé einfaldlega ekki mál málanna frá sjónarhóli Íslendinga - þegar allt kemur til alls höfum við jú raunverulega reynslu af því að hafa kvenkyns þjóðhöfðingja. Frá þeim sjónarhóli má túlka skopmyndina sem ádeilu á yfirborðsmennsku Bandaríkjamanna - að horfa á kynið og húðlitinn, frekar en hvað einstaklingurinn stendur fyrir.
Þýðir þetta þá að Íslendingar séu upp til hópa fordómalausir? Nei - málið er ekki svo einfalt - það er nefnilega óþægilega grunnt á fordómunum hjá mörgum hérna - en Púkinn sér þessa skopmynd ekki sem rasistíska fordóma - ekki fyrir hinn ætlaða markhóp - íslenska lesendur, en það er hins vegar vel skiljanlegt að hún veki viðbrögð annars staðar.
![]() |
Myndasaga Sigmunds gagnrýnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 19. maí 2008
Hvenær er list list?
Það er erfitt að vera listamaður, þegar hreinsunardeild Reykjavíkurborgar lítur á listaverkin sem óþrifnað sem beri að fjarlægja - en þessu lenti Christoph Büchel í - rasistaplakötin sem voru hengd upp voru víst ekki rasistaplaköt, heldur hluti af gjörningi.
Þetta er nú reyndar ekki nýtt vandamál - Púkann rámar í að hafa heyrt af listamanni sem hvolfdi úr ruslatunnu inni á listasafni sem hluti af gjörningi um firringu nútímasamfélagsins, en "listaverk" hans hlaut víst svipuð örlög.
Annars ætti Púkinn ekkert að tjá sig um svona listamenn - hann skilur ekki verk þeirra - að svo miklu leyti sem hægt er að skilja þau, en leit á vefnum að "Christoph Büchel" leiddi ýmislegt áhugavert í ljós. eins og til dæmis þessa sögu.
Það sem Púkinn veltir hins vegar fyrir sér er hvort "listamanninum" muni verða gert að greiða kostnaðinn vegna hreinsunarinnar, eða hvort hann muni krefjast skaðabóta fyrir eyðileggingu listaverksins.
![]() |
Ekki áróður gegn innflytjendum heldur gjörningur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 18. maí 2008
Púkinn og biblíunámskeiðið
Þeir sem þekkja Púkann eða lesa skrif hans reglulega ættu að vita að hann er ekki í réttum markhópi fyrir Biblíunámskeið sértrúarsafnaða.
Engu að síður datt auglýsingableðill um slíkt námskeið inn um bréfalúguna hjá Púkanum nýverið.
Þótt sá hópur sem stendur á bak við þetta námskeið sé nú ekki sá öfgafyllsti sem finnst hefur Púkinn nú margt við efnið að athuga.
Þessi litli bæklingur ber með sér að þeir sem standa að námskeiðinu trúa því að "spádómar" Biblíunnar hafi einhverja raunverulega þýðingu fyrir mannkynið - til dæmis að Opinberunarbókin sé ekki bara óráðshjal geðsjúklings, heldur varði atburði sem hafi gerst, muni gerast, eða gætu gerst.
Ein spurning í bæklingnum sló hins vegar Púkann svolítið.
"3) Er heimsendir góðar eða slæmar fréttir?"
Púkinn veltir fyrir sér hvað hrjái fólk hefur einhverja þörf til að spyrja svona spurningar - er það veruleikafirrt, eða bara sjúkt, sjúkt, sjúkt?
Það er þónokkur hópur fólks sem trúir því að "heimsendir" sé yfirvofandi - sumir líta svo á að hann sé óhjákvæmilegur, því nú um þessar mundir séu 6000 ár liðin frá sköpun heimsins og því sé þúsundáraríkið í nánd - þeir eru nú sem betur fer fáir hér á Íslandi sem afneita vísindum á þann hátt, en fjöldi svona fólks í löndum eins og Bandaríkjunum og Tyrklandi er skelfilegur.
Aðrir skoða atburði samtímans í samræmi við sína túlkun á Biblíunni og líta svo á að endalokin hljóti að vera að nálgast. Þeir eru til sem trúa því til dæmis að á næstu árum muni miklar hörmungar dynja yfir mannkynið, plágur, hungursneyð og stríð - þar á meðal bardaginn við Meggido. Sumir túlka þetta sem svo að kjarnorkustríð í Ísrael sé ekki aðeins óhjákvæmilegt, heldur nauðsynlegt eða jafnvel æskilegt.
Þetta er að sjálfsögðu sérstakt áhyggjuefni ef þessir einstaklingar eru í þeirri stöðu að geta stuðlað að því að framkalla heimsendi - hvað ef forseti Bandaríkjanna væri til dæmis þessarar skoðunar?
Það er í raun ekki svo fjarstæðukennt - þegar dagbækur Ronald Reagan voru gerðar aðgengilegar í fyrra rákust menn þar á hluti eins og:
Sometimes I wonder if we are destined to witness Armageddon.
og
Got word of Israel bombing of Iraq - nuclear reactor. I swear I believe Armageddon is near.
Það er ekkert launungarmál að Púkinn telur nauðsynlegt að berjast gegn trúarsöfnuðum sem halda fram svona heimsendaboðskap - Púkinn er þeirrar skoðunar að trúarbrögð, sér í lagi ofsabókstafstrú sem hafnar vísindum sé ein mesta ógn mannkynsins um þessar mundir.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Laugardagur, 17. maí 2008
Þrjú umslög - lítil saga
Í bananalýðveldinu Langtburtistan áttu sér stað stjórnarskipti. Þegar gamli forsætisráðherrann afhenti þeim nýja lyklana að ráðuneytinu rétti hann honum líka þrjú númeruð umstög og sagði honum að opna þau í réttri röð ef hann stæði frammi fyrir erfiðri krísu í efnahagslífinu.
Nokkrum mánuðum síðar skall fyrsta krísan á og ráðherrann sá fram á að sér yrði ekki vært í embætti mikið lengur að öllu óbreyttu. Hann mundi þá eftir umslögunum þremur og opnaði það fyrsta. Í því var lítill miði sem sagði "Kenndu mér um allt". Ráðherrann fór að þessum ráðum, kenndi röngum ákvörðunum fyrri ríkisstjórnar um allt sem aflaga hafði farið, og tókst að sannfæra þjóðina að hún yrði að herða sultarólina um stund meðan unnið væri úr þeim vandamálum sem forverar hans bæru ábyrgð á.
Nokkrum misserum síðar stefndi allt aftur á sama veg og ráðherrann opnaði annað umslagið. Í því var miði sem sagði "Kenndu útlendingum og ytri aðstæðum um allt". Ráðherrann fór að þessum ráðum og kenndi erlendum spekúlöntum og óhagstæðri þróun á hrávöruverði á erlendum mörkuðum um ástandið í efnahagslífinu. Þjóðin trúði honum og ró færðist yfir.
Þó koma að því að ólga gaus upp aftur í þjóðfélaginu og ráðherrann opnaði þriðja umslagið skjálfandi höndum. Í því var miði sem sagði "Útbúðu þrjú umslög".
-----------------------
Púkinn getur ekki að því gert, en stundum veltir hann fyrir sér hvort íslenskir ráðamenn eigi eitthvað sameiginlegt með þessum ímynduðu kollegum sínum í Langtburtistan.
Þriðjudagur, 13. maí 2008
Að flytja inn vandamál?
Það var einu sinni þjóð sem opnaði landamæri sín fyrir hópi fólks frá öðru landi. Sumt af því fólki var að flýja náttúruhamfarir, en allt var það að leita að betra lífi fyrir sig og sína. Þegar þetta fólk kom fyrst til nýja landsins var oft litið niður á það - hreinlæti þess þótti ekki upp á marga fiska og tungumálaerfiðleikar gerðu þeim erfitt fyrir í upphafi.
Flestir úr þessum hópi héldu sig út af fyrir sig - bjuggu helst innan um samlanda sína sem töluðu sama mál og deildu sömu menningu. Með tíð og tíma samlagaðist þó þessi hópur öðrum íbúum landsins - Trúarskoðanir voru ekki til vandræða, því þær voru svipaðar og ríkjandi skoðanir annarra landsmanna, en yngri kynslóðirnar misstu tökin á tungumáli forfeðranna, þar sem það var ekki lengur notað til daglegra samskipta, þannig að eftir því sem árin liðu samlagaðist þessi hópur meir og meir þeim sem bjuggu fyrir í landinu.
Þessi hópur aflagði ýmsar venjur sem hann hafði flutt með sér frá gamla landinu, eins og til dæmis sérkennilegar nafnavenjur, en hélt dauðahaldi í aðrar venjur, jafnvel venjur sem höfðu verið aflagðar í gamla landinu - eins og til dæmis að borða vínartertur á tyllidögum.
Já, vínartertur - ég er nefnilega að tala um Íslendingana sem fluttu til Vesturheims á árunum eftir 1874.
Nú á síðustu áratugum hefur staðan hins vegar breyst þannig að fólk sækist eftir að flytja til Íslands, ekki frá því, en öll umræða um innflytjendamál hér á landi er þess eðlis að þeir sem gagnrýna eitthvað eru stimplaðir sem rasistar og umræðan þar með drepin.
Púkinn er þeirrar skoðunar að það verði að gera ákveðnar kröfur til þess fólks sem vill flytja hingað og gerast íslenskir borgarar.
Efst á blaði er krafan um tungumálakunnáttu. Það verður að veita innflytjendum nauðsynlega kennslu í íslensku, þannig að tungumálið myndi ekki múr milli þeirra og annarra. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar börnin eiga í hlut - til að þau eigi möguleika á að spjara sig, í stað þess að verða að jaðarhópi, þá verða þau að ná fullu valdi á íslensku. Ekkert annað kemur til greina. Ef fjölskyldur vilja að auki viðhalda þekkingu á tungumáli upprunalandsins (svona eins og sumir Kanadamenn af íslenskum uppruna) þá er það þeirra mál - en Púkinn vill ekki sjá einhver tungumálagettó myndast hér.
Í öðru lagi er það krafan um menningarlega aðlögun. Púkanum finnst mikilvægara að innflytjendurnir aðlagist samfélaginu en að samfélagið aðlagist þeim - Það er ekki þar með sagt að innflytjendur þurfi að taka upp þá siði sem gilda í samfélaginu, heldur að sætta sig við að þeir siðir sem fólk kemur með verða að víkja fyrir siðum landsins ef um árekstur er að ræða. Púkanum finnst t.d. ekki ásættanlegt ef sú staða kemur upp að skólamötuneytum sé gert að bjóða ekki upp á ákveðinn mat, ef sá matur er á einhvern hátt óásættanlegur fyrir einhvern ákveðinn hóp, svo eitt dæmi frá Danmörku sé tekið.
Í þriðja lagi verður fólkið að hafa möguleika á að verða nýtir þjóðfélagsþegnar, en ekki bara baggi á samfélaginu. Það gengur til dæmis ekki að hola fólki niður í bæjarfélögum þar sem fyrir er alvarlegt atvinnuleysi - það verður að gefa fólki möguleika á að bjarga sér.
Séu þessi þrjú skilyrði uppfyllt, þá er Púkinn tilbúinn að bjóða fólk frá öllum heimshornum hingað.
![]() |
Flóttafólk verði boðið velkomið til Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 13. maí 2008
Jesús, barnaníðingurinn og dómarinn
"Jesús hefur fyrirgefið mér", sagði barnaníðingurinn Russel Back Jr. fyrir dómi, en hann hafði rænt þrem börnum, tekið myndir af þeim bundnum og nöktum og fróað sér fyrir framan þau.
Já, það er gott að eiga ósýnilegan súpervin sem fyrirgefur hvað sem er, þannig að menn þurfi a. m. k. ekki að taka afleiðingum gjörða sinna úr þeirri áttinni.
Þetta sýnir kannski í hnotskurn einn helsta veikleika "kristilegs siðgæðis" - ósýnilegi súpervinurinn getur fyrirgefið allt ... og þá er allt orðið gott, eða hvað?
Dómarinn fyrirgaf Russel hins vegar ekki og dæmdi hann í níu ára fangelsi - það mesta sem hægt var að fá án þess að láta börnin bera vitni.
Sjá alla fréttina hér.
Laugardagur, 10. maí 2008
Þarf fleiri og stærri fangelsi?
Það er auðvelt að bregðast við fréttum um yfirfull fangelsi með því að heimta að fleiri og stærri fangelsi verði byggð.
Það er hins vegar allt annað mál hvort það er rétta lausnin, en í því sambandi er best að skoða hinn þrefalda tilgang fangavistar.
Refsing
Í fyrsta lagi þjónar fangavist þeim tilgangi að refsa fanganum - hugmyndin er að fangelsun hafi fælingarmátt - menn vilji fyrir alla muni forðast að lenda þar inni - og þeir sem lenda inni vilji forðast að koma þangað aftur. Til þess að fangavistin hafi fælingarmátt mega fangar hins vegar ekki líta á hana sem "hvíldardvöl", eins og sagt er að sé viðhorf sumra fanga - sér í lagi af austur-evrópskum uppruna. Frá þessum sjónarhóli er hægt að mæla árangur fangavistarinnar út frá "endurkomutíðni" - því minni líkur sem eru á að menn lendi ítrekað á bak við rimlana, því betur er kerfið að standa sig. Japanska fangelsiskerfið er sagt státa af mjög lágri endurkomutíðni, enda er fangelsisvist þar víst frekar niðurdrepandi - það mun vera regla fremur en undantekning að mönnum sé haldið í einangrun langtímum saman.
Mannbæting
Í öðru lagi þjónar fangavist þeim tilgangi að "bæta"fangann - gera hann að betri manni sem ekki brjóti af sér aftur. Hér er aðallega horft til menntunar og þess að losa fangann við eiturlyfjafíkn. Til að fangelsið virki sem meðferðarstofnun verður hins vegar rétt meðferð að vera í boði, starfsfólk verður að hafa rétta þjálfun og meðferðinni verður að vera fylgt eftir þegar fanginn er kominn aftur út í samfélagið. Þetta mætti bæta verulega á Íslandi.
Verndun samfélagsins
Í þriðja lagi þjónar fangavist þeim tilgangi að vernda samfélagið gegn fanganum -hugmyndin er sú að viðkomandi brjóti ekki meira af sér meðan hann er bak við lás og slá. Þetta á sérstaklega við þegar um geðsjúka afbrotamenn er að ræða, eða ofbeldishneigða síbrotamenn.
Það er staðreynd að fangelsismál hér á landi eru ekki í góðu lagi, en hvað er hægt að gera? Púkinn myndi vilja sjá eftirfarandi:
- Sérstakt öryggisfangelsi fyrir erlenda fanga sem stendur til að vísa úr landi eftir afplánun. Það er engum greiði gerður með því að leyfa þeim að stofna til tengsla við íslenska fanga. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef erlendu fangarnir hafa tengsl við erlend glæpasamtök.
- Stórlega bætt afvötnun/fíkniefnameðferð - það eru of margir fangar sem fremja afbrot til þess að fjármagna neyslu - það er engin von til að þeir láti af því nema það takist að stöðva neysluna.
- Ef fíkniefnameðferð ber ekki árangur og viðkomandi einstaklingur heldur áfram afbrotum eftir að hafa verið sleppt út, jafnvel í annað, þriðja eða fjórða sinn, er ljóst að
refsing og mannbæting virka ekki á viðkomandi - í þeim tilvikum er tvennt til ráða - það mætti gefa viðkomandi sitt dóp frítt og undir eftirliti, þannig að hann þurfi ekki að fjármagna neysluna með afbrotum. Hin lausnin er að loka viðkomandi inni til lengri tíma - í þeim tilgangi að vernda samfélagið gegn viðkomandi.
![]() |
140 dæmdir menn á biðlista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. maí 2008
Taser og réttarlæknar
Taser fyrirtækið hefur nú skorið upp herör gegn þeim réttarlæknum sem voga sér að nefna rafstuðbyssurnar sem dánarorsök þegar fólk deyr skömmu eftir að hafa verið skotið með þeim.
Það sem fyrirtækið ætlast til að sé nefnt sem dánarorsök er "excited delirium" (sjá Wikipedia grein um það hér) en sú dánarorsök er ekki viðurkennd af læknavísindunum.
Þeir réttarlæknar sem nefna byssurnar mega eiga von á málssókn, eða eins og talsmaður fyrirtækisins, Steve Tuttle, segir:
We will hold people accountable and responsible for untrue statements. If that includes medical examiners, it includes medical examiners.
Sjá nánar um málssóknirnar hér.
Fyrirtækinu hefur tekist að fá dánarorsök breytt í um 60 tilvikum þar sem fólk hefur dáið skömmu eftir að hafa fengið rafstuð úr byssunum, en fjöldi málaferla stendur enn yfir þar sem aðstandendur fórnarlamba krefja fyrirtækið um skaðabætur.
Það yrði jú afskaplega slæmt fyrir viðskiptin ef byssurnar yrðu viðurkenndar sem hættuleg vopn...þá gætu þeir jafnvel þurft að hætta að selja þær til almennings á vefnum (sjá pöntunarsíðuna hér).
![]() |
Taser International gerir athugasemd við Amnesty |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. maí 2008
Kjararýrnun: Æskileg og óhjákvæmileg
Púkinn hlustaði á forsætisráðherra og bankamenn tala um framtíðarhorfur á fundi í gær. Það sem Púkanum þótti einna athygliverðast var það viðhorf að almenn kjaraskerðing væri ekki aðeins óhjákvæmileg, heldur líka nauðsynleg.
Með öðrum orðum - það væri nauðsynlegt að það verðbólguskot sem nú stendur yfir fengi að ganga í gegn án þess að til víxlhækkana launa og verðlags kæmi. Einfalda framsetningin á þessu er að sjálfsögðu sú að fólk verði að gjöra svo vel að sætta sig við að laun þess hækki ekki til jafns við verðlagshækkanir.
Þetta er að sjálfsögðu ekki nokkuð sem fólk vill heyra, en staðreyndin er einfaldlega sú að þjóðin hefur lifað um efni fram undanfarin ár - Púkinn gerir sér að vísu fulla grein fyrir því að margir hafa haft það skítt en þeir eru fleiri sem hafa haft það "of" gott, samanber tölur um fjölda seldra flatskjáa.
Íslendingar eru orðnir góðu vanir - og líta á það sem náttúrulögmál að kjör þeirra fari batnandi með hverju ári - kaupmáttaraukningin sé meiri í dag en í gær.
Því miður ... þetta er bara ekki svona.
Við stöndum frammi fyrir samdrætti og margir munu þurfa að sætta sig við það að kjör þeirra munu versna. Afborganir fara hækkandi af gengistengdum lánum, fasteignir seljast ekki, fyrirtæki keppast ekki lengur um að bjóða nýútskrifuðum viðskiptafræðingum vinnu. Einhverjir munu þurfa að losa sig við einkaþoturnar sínar og aðrir að láta gamla bílskrjóðinn duga eitt ár í viðbót.
Boðskapurinn er sá að ef þjóðin lifir um efni fram, þá kemur fyrr eða síðar að skuldadögunum. Kjaraskerðingin mun koma misilla niður á fólki. Sumir fá minni yfirvinnu eða lægri launahækkanir, aðrir missa vinnuna eða komast í þrot vegna þess að fjármagn er dýrt eða illfáanlegt.
Það þýðir ekkert að heimta að kjörin haldist áfram jafn góð og þau voru - það verður að ná fram "þjóðarsátt" um kjararýrnun.
Sá ræðumaður sem lagði mesta áherslu á þetta minntist að vísu ekki á hvort hann myndi ganga á undan með góðu fordæmi og þiggja lægri laun, en reyndar þykir Púkanum nú sennilegt að laun margra bankamanna muni eitthvað lækka - yfirstandandi samdráttur ætti að hafa í för með sér lækkaða bónusa.
Púkinn bíður nú spenntur eftir því að sjá hvort stjórnmálamennirnir skerði sín eigin kjör, áður en þeir fara að tala um nauðsyn "þjóðarsáttar" til að halda launahækkunum niðri.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 9. maí 2008
Kauphöll án fyrirtækja?
Fyrirtækjum í Kauphöllinni fer stöðugt fækkandi - Flaga og FL Group eru nú á förum þaðan og ekki virðast í sjónmáli nein fyrirtæki sem stefna á skráningu þar.
Það gæti fækkað enn frekar á næstu misserum, til dæmis ef fyrirtæki sem bæði eru skráð sameinast eða ef fleiri fyrirtæki hlaupa burt með skottið milli fótanna.
En koma ekki bara ný fyrirtæki í staðinn?
Varla - Það er ekki auðvelt fyrir smærri fyrirtæki að fara á markað hér á landi. Umstangið er gífurlegt og það er jafnvel varla erfiðisins virði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að láta sig dreyma um skráningu á markað. Stóru fyrirtækin eru ýmist þegar skráð (eða skráð og afskráð), nú eða hafa lýst því yfir að þau ætli ekki á markað.
Ef svo fer fram sem horfir er hætt við að eftir nokkur ár verði orðið tómlegt í kauphöllinni.
![]() |
Afskráning samþykkt á hluthafafundi FL Group |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |