Guð er í kjallaranum og heldur þræla

slaveGuð er fundinn.  Hann heitir Glenn Marcus, 53 ára, og býr í kjallara í húsi foreldra sinna þar sem hann selur myndasögublöð.

Já - og hann hefur líka nokkra BDSM þræla, konur sem hann kallar nöfnum eins og "Doggie", "Nameless" og  "Robot".  Þrælarnir kalla hann hins vegar "God".

Glenn Marcus er nú fyrir rétti, en réttarhöldin snúast að miklu leyti um það hvort samband hans og þrælanna byggðist á upplýstu samþykki þeirra eða ekki.

Það skal tekið fram að hann hélt konunum ekki föngnum.  Þær komu og fóru eins og þær vildu - komu till að láta niðurlægja sig og pína á undarlegasta hátt.

Púkanum finnst mannfólk skrýtin dýrategund og stundum skilur hann það alls ekki.  Honum finnst til dæmis undarlegt að femínistar mótmæli ekki hóteli sem gerir út á S&M markaðinn og útbýr sérstakar handjárnafestingar á rúmin, en ætli alveg að ærast yfir hóteli sem hýsir hóp fólks sem kemur hér og ætlar að fara í Bláa lónið, skoða Geysi og kynna sér skemmtanalíf Reykjavíkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þú skrifar frábærar færslur... Fyrstu kynnin voru kannski ekki sem bestar, en mér finnst þú vera frábær penni (Takkaborð)

Gunnar Helgi Eysteinsson, 16.2.2007 kl. 19:08

2 Smámynd: Púkinn

Takk...og fyrirgefðu nölfrið í upphafi. Ég var svolítill fýlupúki þann daginn.

Púkinn, 16.2.2007 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband