Lottó og fátækt

lottoÞað er sjálfsagt að óska vinningshafa dagsins til hamingu, en hins vegar á Púkinn svolítið erfitt með að skilja þá sem taka þátt í Lottóinu, eða happdrættum yfirleitt.

Sér í lagi er þetta illskiljanlegt þegar um er að ræða fólk sem telur sig búa við kröpp kjör og tekur þátt í von um að bæta eigin hag, en ekki til að styðja aðstandendur happdrættisins.

Það er staðreynd að í heildina, til lengri tíma litið tapar fólk á því að taka þátt í happdrættum - meðaljóninn fær færri krónur til baka en hann leggur í þetta.  Það er að vísu alltaf von um "stóra vinninginn", en líkurnar eru á móti því - að meðaltali tapar fólk fleiri krónum en það fær til baka.

Nei, fólk sem er að kvarta undan því að hafa of fáar krónur á milli handanna ætti að byrja á að skera niður óþarfa eins og happdrætti og reykingar - þá fyrst er hægt að taka mark á kvörtununum þeirra.


mbl.is Einn fékk fimmfaldan lottópott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: birna

Lífið er ekki meðaltalsútreikningur

Ef ég væri láglaunamanneskja, eða öryrki og sæi ekki fram á að eiga neinn möguleika (=0.0%) á að verða rík

þá væri lotto ágætur kostur, því þar get ég keypt mér veika von (>0.0%) um ríkidæmi fyrir lítinn pening.

Speki dagsins í boði birnu

birna, 11.3.2007 kl. 13:40

2 Smámynd: Jens Guð

Oft kaupi ég happdrættismiða til að styrkja tiltekinn málaflokk fremur en að reikna með stóra vinningnum.  Íþróttahreifingin fær hagnaðinn af lottóinu, ásamt Öryrkjabandalaginu.  En vinningsvonin er gulrótin.

Í okkar fámenna landi þekkja allir marga sem hafa unnið stóra vinninginn.  Eitt sinn vann pabbi hæsta vinning í happdrætti Háskólans.  Fyrrum vinnufélagi minn vann íbúð í happdrætti DAS.  Tvo menn til viðbótar þekki ég sem unnu sitthvorn bílinn í bílahappdrættum.  Þannig mætti áfram telja.  Þegar vinningum rignir svona yfir ættingja og vini þá er raunhæft að ætla að röðin geti komið að mér. 

Jens Guð, 11.3.2007 kl. 19:45

3 identicon

Lottó er bara skattur á heimskt fólk.

Grétar Amazeen (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 20:16

4 Smámynd: Sigurjón

Ég myndi ekki taka svo djúpt í árinni, en segi að Lottó er skattur á fólk sem kann ekki að reikna.

Sigurjón, 13.3.2007 kl. 04:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband